Janúar hefur verið einstaklega góður til vetraríþróttaiðkana. Frost og stillur þannig að snjórinn sem kom í desember hefur nánst haldið. Við höfum reynt að nýta tækifærið og dregið fram gönguskíði og meira að segja líka skauta ! Já, færið á Vífilsstaðavatni er hreint úr sagt stókostlegt núna. Vatnið er allt lagt og svellið er spegilslétt og fallegt. Maður man ekki eftir öðru eins …ekki einu sinni í “gamla daga”.

20070121 Skautað á Vífilsstaðavatni

Shih-Tzu hittingur

20. janúar 2007

Í dag hittust sætustu hundar á Íslandi ;-) í hundaskólanum hjá Alberti. Það er ekki hægt að segja annað en að systkynin sex hafi átt senuna, svo ótrúlega falleg og skemmtileg hvolpa skott. :)

20070120 Shihtzu hittingur

Guðrún Hrefna varð 14ára í dag. Í tilefni af því bauð hún nokkrum vinkonum í klifurhúsið þar sem var tekið á því. Stelpurnar sýndu allar mikil tilþrif.

20070112 14ára afmæli Guðrúnar í Klifurhúsinu

Gönguskíðatrimm

6. janúar 2007

Það er einkar handhægt að skreppa út á Vífilsstaðatún á gönguskíði um þessar mundir. Hér eru nokkrar myndir úr einni slíkri ferð.

20070106 Gönguskíðaferð á Vífilsstöðum

Nýjárskveðja til þín !

1. janúar 2007

Kæru ættingjar og vinir nær og fjær

Nýjársdagur 2007

Við óskum ykkur farsældar á nýju ári og þökkum ykkur öllum kærlega fyrir að vera okkur svona góðir og skemmtilegir samferðamenn. Við vonumst til að eiga áfram með ykkur öllum enn fleiri og jafn ánægjulegar samverustundir eins og þær sem við geymum nú þegar í minningaboxinu okkar.

Í upphafi nýs árs er góður siður að líta um öxl og rifja upp merkustu atburði ársins. Þeir hafa nú verið listaðir hér á þessa síðu í máli og myndum. Endilega rápið hér um að vild og ekki væri verra ef þið skilduð eftir spor í gestabókinni ;-) .

Þann 25.nóvember 2006 var haldið Íslandsmeistaramót í hundafimi. Þær “systur” Helga og Ronja kepptu þar í flokki 12 ára og yngri. Það er skemmst frá því að segja að þær voru báðar yngstu keppendurnir (hundur og stjórnandi) og gerðu sér lítið fyrir og nældu sér í fyrsta sætið. Sjá má skemmtilegar myndir af þessari uppákomu hér.

20061125 Hundafimi

Klifurferð til Corsicu

25. júlí 2006

Fjölskyldan fór ótroðnar slóðir í ferðavali síðasta sumars. Tjaldinu og öðrum viðlegubúnaði var pakkað í töskur og flogið til Friedrichshafen þaðan sem keyrt var til norðurstrandar Ítalíu og ferja tekin yfir til Corsicu. Þar var svo dvalið í hálfan mánuð við ýmsa skemmtun…..nánar hér

20060725..0808 Corsica

…og það gerðu einnig flestir hinir í gönguklúbbnum fótfráa “2enn”. Í því tilefni var haldið í Dólómítana á Ítalíu þar sem arkað var um Rósagarðinn og fleiri stórbrotna staði í eina 5 daga. Reyndist þetta örlítið ;-) frábrugðið hinum íslensku “blautlegu” ferðum sem hópurinn þekkir svo vel. Þarna var passlega heitt og sól og bjór í hverju hádegi og þríréttað á kvöldin …og jafnvel uppábúið.

20060702 Dolomitar

Guðrún Hrefna hefur löngum verið lipur við að semja ljóð og sögur. Hún tók á dögunum þátt í smásagna og ljóðasamkeppni Æskunnar og RÚV með þeim afleiðingum að hún endaði á Bessastöðum þar sem hún tók á móti verðlaununum. Ljóðið hennar “Á fallegum sumardegi” samdi hún til pabba síns í afmælisgjöf fyrir um tveimur árum.

20060511 GHG á Bessastöðum

Guðrún Hrefna keppti til sigurs í 5.fl. í handbolta með Stjörnunni og unnu þær Íslandsmeistaratitil. Þetta er þriðja árið hennar Guðrúnar í handbolta og hún hefur staðið sig alveg rosalega vel og nú í vor fékk hún í annað sinn veglegann bikar sem leikmaður liðsins.

20060430 GHG handb.5fl Íslandsmeistarar